Menu
Close

Afþreying

Afþreying

Afþreying
Kaffihúsið - Hvíti fálkinn

Kaffihúsið er opið á opnunartíma Hernámssetursins.

Boðið er upp á te, kaffi, gos og áfenga drykki. Einnig er boðið upp á súpur, brauð, kökur og að sjálfsögðu erum við með kleinur.

Sundlaugin
(linkur á upplýsingar um sundlaugina)

Sundlaugin er austan við félagsheimilið Hlaðir og eru búningsklefar og vatnsgufubað í kjallara félagsheimilisins auk útiklefa. Sundlaugin er 16,67 x 8 metrar og við hana er einnig barnavaðlaug með rennibraut og tveir heitir pottar. Hægt er að semja um leigu á sundlauginni í tengslum við leigu á húsinu.

Leiksvæðið

Á tjaldsvæðinu er aðstaða fyrir börn að leika sér. Rólur, sandkassi, fótboltamark og ýmis önnur tæki.

Tjaldsvæðið

Að Hlöðum er stórt tjaldstæði fyrir tjöld, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Á tjaldsvæðinu eru tvö tunnugrill, leiksvæði fyrir börnin og góð salernisaðstaða, auk þess sem hægt er að fara í sturtu og vaska upp undir berum himni.

Minjagripir

Hernámssetrið hefur látið sérframleiða fyrir sig: Bjór, hitabrúsa, glös, vatnsflöskur og stuttermaboli.

Allur ágóði af sölu bjórsins rennur til góðgerðarsamtaka sem aðstoða stríðshrjáð börn.

 

 

Sumaropnun
Vetraropnun
  • Mánudagar
    Þriðjudagar
    Miðvikudagar
    Fimmtudagar
    Föstudagar
    Laugardagar
    Sunnudagar
    Lokað
    Lokað
    13:00 - 17:00
    13:00 - 17:00
    13:00 - 17:00
    11:00 - 17:00
    11:00 - 17:00
  • Mán - sun
    Lokað
    Opið fyrir hópa.
    Hafa samband í síma 660-8585
Almennt verð kr. 2.500
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar kr. 2.200
Börn yngri en 11 ára kr. 0

Staðsetning

Hlaðir, Hvalfjarðarsveit

Google Map